Markmið Hótel Rauðuskriðu eru að:
- vinna stöðugt að því að nærumhverfi hótelsins sé hreint og aðlaðandi.
- styðja við verndun svæða með menningarlegt- og/eða náttúrulegt mikilvægi.
- minnka mengun með því að minnka sóun á hlutum, t.d. með endurnýtingu og endurvinnslu.
- tryggja að frárennslisvatn hafi ekki mengandi áhrif á umhverfið.
- nýta endurvinnanlegar auðlindir í starfseminni.
- stunda „græn“ (vistvæn, lífræn, umhverfisvæn) innkaup.
- leitast stöðugt eftir nýrri þekkingu varðandi umhverfismál og upplýsa starfsfólk um slík mál.
- virkja gesti í umhverfisvernd, með upplýsingum, reglum og ábendingum.
- styrkja samstarf okkar með yfirvöldum og öðrum fyrirtækjum og íbúum svæðisins.
- leitast við að uppfylla lög og reglugerðir er varða umhverfið.
- leitast stöðugt við að bæta okkur í því sem snýr að framkvæmdum og þjónustu með það að markmiði að draga úr óafturkræmum áhrifum á umhverfið.